Já ég er ekki beint búin að vera dugleg við að blogga undanfarið.
Afsakanir....hummm það er búið að vera svo brjálað í skólanum. Það
styttist óðfluga í prófin og Kenyaundirbúningurinn í hámarki. Við
tannsagellurnar erum sem sagt búnar að bóka flug til London
sunnudaginn 14 maí og þaðan beint til Nairobi (aðeins 8 og 1/2 tími
frá London til Nairobi)

. Siðan byrjum við að vinna á
heilsugæslunni strax á mánudaginn og verðum þar í tvær vikur

Maður er komin með nettan fiðring í magann og smá kvíða (ef ég er
alveg hreinskilin). Það er sama við hvern við tölum okkur er alltaf
sagt að passa okkur. Fyrir ykkur sem þekkið ekki mikið til Kenya þá
er mjög mikið um glæpi í Nairobi og við komum til með að gista í
slömminu allavegana fyrstu vikuna

Alls ekki óalgengt að stelpum
eins og okkur sé rænt og nauðgað.....Sjokk sjokk.....Ég lofa að við
förum rosa varlega og ætlum ekki að vera á röltinu einar að kvöldi
til. Komum til með að hanga öll kvöld inni á hótelherbergi. Stuð
stuð stuð. Síðan eftir menningarsjokkið ætlum við Sonja að halda á
vit ævintýranna og skella okkur í rosa safaríferð og vonandi endum
við í standbænum Mombassa

. Sé mig og Sonju fyrir mér með
kokteil í hönd á sundlaugarbakkanum.....hihihihi. Já þetta á eftir
að verða geggjað gaman og mikil upplifun.
Jæja ætla að fara að kíkja í námsbækurnar.
Spurning 1)
Hvernig getur maður verið marga klukkutíma með 14 auðlestar
blaðsíður???
Svar: ekki búin að læra í ár og ekki komin í gírinn
Spurning 2)
Hvað getur maður gert til að lifta sér upp í próflestri
Svar: skella sér í fjallgöngu á Trölladyngju og skella sér síðan í
Bláa lónið og sóla sig

(Fórum nokkrir
tannsakrakkar í fjallgöngu í gær og Bláa lónið bara Nice og sumir
fengu bara smá lit

Ekki slæmt það)
Spurning 3)
Elskar Halla sól, sumar, grillpartý og íiiiiiiiissssskaldan
bjór????
Svar: Ef þið þekkið mig þá vitið þið svarið elskurnar mínar
Kv Halla stuðbolti